Finnið margliðu $p(x)$ þannig að $p(1-x)+2p(x)=x$.
Ef við stingum $1-x$ inn fyrir $x$ í $p(1-x)+2p(x)=x$ fáum við $p(x)+2p(1-x)=1-x$. Ef við margföldum fyrri jöfnuna með 2 og drögum þá seinni frá þeirri fyrri fáum við að $$ 4p(x)-p(x)=2x-(1-x)=3x-1$$ og því er $p(x)=x-\frac{1}{3}$.