Skip to Content

Frumtala

Náttúruleg tala p>1 kallast frumtala ef einu náttúrulegu tölurnar sem ganga upp í henni eru talan 1 og talan p. Þetta er jafngilt því að segja að talan p sé frumtala ef fyrir sérhverjar náttúrulegar tölur a og b þannig að p gengur upp í ab þá gengur p líka upp í a.m.k. annari þeirra.

Ljóst er að fyrsta frumtalan er 2 og almennt er hægt að ákvarða hvort gefin náttúruleg tala n sé frumtala með því að prófa að deila öllum frumtölum frá 2 til n upp í n. Ef alltaf fæst afgangur þá er talan frumtala.

Allar frumtölur minni en 100 eru eftirfarandi: 2,3,5,7,11,13,17,19,23,29,31,37,41,43,47,53,59,61,67,71,73,79,83,89,97.

Dæmi:   Talan 383 er frumtala því 38319.57 og engin talnanna 2,3,5,7,11,13,17 eða 19 gengur upp í henni.

Algebra