Horn kallast rétt horn ef armar þess eru þverstæðir. Öll rétt horn eru jafn stór og gráðumál þeirra er 90∘. Rétt horn er yfirleitt auðkennt á mynd með því að setja ferning við oddpunkt þess.
Dæmi:
Á myndinni er ∠AOB rétt horn. Þá er hálflínan OB⟩ þverstæð á línuna ⟨AC⟩. En þá er ∠COB líka rétt horn.
Eiginlegum hornum sem ekki eru rétt horn má skipta í tvo flokka:
hvöss horn; það eru eiginleg horn sem eru minni en rétt horn,
gleið horn; það eru eiginleg horn sem eru stærri en rétt horn.
Dæmi: Á myndinni er ∠AOB hvasst en ∠COB er gleitt.