Látum f:X→Y vera fall þar sem X og Y eru hlutmengi í mengi rauntalna. Sagt er að f sé vaxandi ef það varðveitir röðun stakanna í X, þ.e. ef eftirfarandi skilyrði er uppfyllt á menginu X: Efx1≤x2,þá erf(x1)≤f(x2).
Sagt er að f sé stranglega vaxandi ef sleppa má jafnaðarmerkjunum í skilyrðinu að ofan, þ.e. ef eftirfarandi er uppfyllt á menginu X: Efx1<x2,þá erf(x1)<f(x2),
Munurinn á vaxandi og stranglega vaxandi föllum er sá að ef f er vaxandi má fallgildið f(x) haldast jafnt eftir því sem x stækkar en ef f er stranglega vaxandi verður f(x) að stækka. Með öðrum orðum eru stranglega vaxandi föll eintæk á meðan vaxandi föll þurfa ekki að vera það. Myndirnar að neðan leiða þennan mun í ljós. Sú vinstri sýnir graf falls sem er vaxandi en ekki stranglega vaxandi en sú hægri sýnir graf falls sem er stranglega vaxandi.
Eins og kemur fram að ofan er sérhvert stranglega vaxandi fall f:X→Y eintækt. Ef það er átækt er það því andhverfanlegt og þá er andhverfan f−1:Y→X er líka stranglega vaxandi.
Dæmi:
- Sýnum að fallið f:R→R; f(x)=2x+3 sé stranglega vaxandi. Látum því x1,x2∈R með x2−x1>0 og athugum:
f(x2)−f(x1)=(2x2+3)−(2x1+3)=2(x2−x1)>0,því samkvæmt forsendu er (x2−x1)>0. Þetta sýnir að f er stranglega vaxandi.
- Sýnum að fallið g:R+→R; g(x)=x2 sé stranglega vaxandi. Látum því x1,x2∈R+ með x2−x1>0 og athugum:
g(x2)−g(x1)=x22−x21=(x2+x1)(x2−x1)>0,því sviginn (x2+x1) er jákvæður þar sem x1,x2∈R+ og sviginn (x2−x1) er jákvæður samkvæmt forsendu. Þetta sýnir að g er stranglega vaxandi.